Ég geri ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn!
Sniðugt
19.09.2006 23:26:14 / Linda

er sko alveg lifandi :)

já ég er á lífi... og er búin að fá líf mitt aftur :)

var að fá tölvuna mína úr viðgerð í dag... og það var sko skipt um móðurborð, harðan disk og skjá... hefðu svosem alveg eins getað látið mig fá nýja tölvu hehe :)

en já, fyrst að ég er komin með tölvuna mína aftur og hún komin í svona fanta gott form held ég að ég verði kannski aðeins meira áberandi í netheiminum á næstunni, þar sem ég þarf hvort sem er líka að fara á netið á hverjum degi eða eikkvað útaf fjarnáminu þá ætti mar að geta skellt inn nokkrum línum hér og þar af og til :D

en já, er að fara í berjamó á morgun, með fullt af börnum á aldrinum 3-5 ára.. það verður geggjað stuð hehe, hlakka til!!

Best að fara að taka sig til fyrir háttinn svo mar meiki það að vakna í fyrramálið...

Ef að það eru einhverjir sem að kíkja hérna inn ennþá myndi ég alveg vilja smá stuðning í því að halda lífinu í bloggi hjá mér :)

nema ykkur finnist að ég eigi að færa síðuna á:

www.enter-me.bloggar.is

commentið þá um það allavega!!

adios amigos!    Linda Hrönn.


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 22:40:16 / Linda

bla

lyklaborðið mitt er bilað þannig að ég nenni engan veginn að blogga...

en ég fékk mér síðu á bloggar.is...  www.enter-me.bloggar.is

aðallega fyrir myndir sko :)

þar eru nokkur albúm með skemmtilegum myndum :)  en ég á samt miklu fleiri myndir bara heima... þannig að ef þið viljið sjá meira þá verðiði að kíkja í heimsókn :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 22:36:56 / Linda

Minn Sirkus já...

jæja... maður er víst búinn að vera skráður hérna í smá tíma...

Er að reyna að læra á þetta :)  Þannig að ég ætla að prófa að blogga hérna svona einu sinni allavega :)

En já... Ég hef ekki mikið að segja í þessari test færslu minni... uuuu...

Fór í 20 ára afmæli hjá Sóley Önnu í gær, það var mjög gaman :)    

Og svo fór ég á Færeyska daga í Ólafsvík um daginn... það var geggjað stuð þar hehe :)
Ekki alveg besta veðrið fyrir útilegu en það var samt mjög gaman...

Svo er ég að fara austur á morgun að hitta Halldór aftur eftir alltof langan tíma :)   Hlakka geggjað til hehe :)

jæja já, segjum þetta bara gott í bili...

Kv. Linda

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 23:24:55 / Linda

Loneliness

jú jú ég er víst löngu komin heim frá Bandaríkjunum...

en ég nenni ekki að skrifa neitt um þá ferð... eða nenni eiginlega voða lítið að skrifa...

Er búin að vera ógeðslega þreytt í allan dag og ætlaði sko að vera löngu sofnuð, en það er svo ógeðslega heitt í herberginu mínu að ég get ekki sofnað... og svo er ég líka svo einmanna :(

Halldór er á Reyðarfirði og ég þarf bara að sofa alein :cry:    Það er ekkert smá erfitt að reyna að sofna ein í rúminu þegar ég hef ekki gert það í guð má vita hvað langan tíma!!

úff... já, svo fékk ég nýja vinnu í dag :)  sótti semsagt um á Leikskóla og fékk það starf í dag, en byrja líklegast 1. ágúst :)   Það á vonandi eftir að vera soldið mikil og góð breyting frá Bónus og 10-11... alveg komin með nóg af þessu búða dæmi!! :)

en já... ég er geggjað einmanna og sakna allra sem ég get saknað núna... takið það bara til ykkar sem eigið það skilið hehe :)

og já, ég og Sunneva fórum í útilegu um helgina ásamt 6 öðrum, aðallega strákum úr perlunni hehe... það var geggjað stuð og þar sem ég keypti mér nýja myndavél um daginn þá tók ég slatta af myndum og set þær inn einhvern tímann við tækifæri!

en segi meira seinna á einhverjum guðlegri tíma og þegar ég er ekki svona þreytt og tóm í hausnum!! :)

Linda Lonely.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 14:25:42 / Linda

Týnd..

Góðan Daginn allir saman :)

já í gær var merkilegur dagur 6.6.'06...

dagsetningin mjög svo spennandi, og svo skeði líka soldið merkilegt hjá mér í gær... góður dagur, góður dagur ;)

en já... ég er búin að týna Sunnevu :$  Hún kom ekki heim í nótt, svaraði ekkert í símann í gærkvöldi og ekki heldur núna! og ég sit bara hérna heima eins og áhyggjufull móðir og bíð eftir að hún hringi :)

...og svo leiðist mér líka þannig að mig vantar hana eiginlega pínulítið :D

Og... ég er komin í sumarfrí! JEY!!    svo fer ég út á laugardaginn... hlakka geggjað mikið til :D

held að ég segi þetta gott í bili... endilega kommentið nú aðeins svo ég nenni einhvern tímann að hafa fyrir því að blogga :)

Linda Hrönn.


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 19:56:12 / Linda

it all sucks

ég er í vondu skapi...

ég er pirruð, reið og sad!!!!!!!!!!

:|   :S   :(    :cry:   :whut:  :^)  :frown:

Linda


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 23:54:08 / Linda

úff!!

dísess kræst!!!!

 Núna sit ég alein heima og er að horfa á kosningarsjónvarpið hjá stöð 2....

rosalega spennandi kosningar... en maður kaus nú ekki einu sinni sjálfur þannig að... :)

en mér leiðist alveg gígatíst!! Halldór er í einhverju strákapartýi, Sunneva að vinna, Katrín í bíó með familíunni, Júlía og Valur bara heima að hafa þá kósý....   Og ég alein hérna heima að sötra bjór og vonast til þess að einhver gæti mögulega haft fyrir því að kíkja aðeins á mig!!!

en já... voða lítið að frétta.... fór í selvogsgrunninn áðan og tók mest allt draslið mitt þaðan... nema það sem ég ætla að henda, eldhúsborðið mitt, og svo hrærivélin mín sem ákvað að hverfa allt í einu á einhvern undarlegan hátt 8| :frown:

eins og ég sagði áðan er voðalega lítið að frétta... nema Sunneva og Katrín útskrifuðust báðar í gær, Sunneva með sveinspróf í framreiðslu og Katrín sem stúdent... :)  

Til hamingju með það elskurnar mínar... vona bara að það sé ekkert svo langt þangað til ég útskrifast sjálf :lol:      

Annars bið ég bara að heilsa í bili... ætla að fara að horfa áfram á kosningarsjónvarpið...

Kv. Linda ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 01:56:53 / Linda

sakni sakn!

já... ég vil koma því á framfæri að ég sakna Katrínar geggjað mikið!! :(

og ég sakna Arnars líka soldið mikið... ég vil að hann fari að hafa samband meira en hann gerir!!!

annars sakna ég voða fárra nema bara mömmu minnar og pabba og systkina minna....

en já í annað... nú sit ég heima og er geggjað happy því Katrín og Sunneva eru báðar hjá mér og Sunneva er flutt inn til mín og Halldórs því Örvar flutti út....

Og... ég er í besta sambandi í geimi og er geggjað hamingjusöm í því! :)

Við erum búin að gera soldið mikið hérna heima undanfarna daga, búin að skipta um ljós í svefnherberginu okkar, forstofunni og eldhúsinu. Svo smíðaði Halldór rosa flottar hillur inni í herberginu hennar Sunnevu og það er allt að verða flott :)

Svo vill ég óska Sunnevu og Katrínu innilega til hamingju með útskriftirnar :)     Sunneva er orðin Þjónn og Katrín er orðin Stúdent :)    *kiss*kiss*

Annars er voða lítið að frétta nema það að ég er að fara út til Bandaríkjanna eftir stuttar tvær vikur!! Pæliði!   Manni finnst alltaf svo langt þangað til eitthvað svona gerist en núna var ég að fatta að það er bara ekkert svo langt þangað til!! :D

En þangað til næst.... skemmtið ykkur vel og hafið það gott ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 18:39:09 / Linda

árshátíð

já ég fór á árshátíð bónuss í gær... það var mjög fínt, góður matur, góður félagsskapur, góð skemmtiatriði, góð hljómsveit og mikið af áfengi...

sem er valdur þess að ég er ógeðslega þunn í dag og nenni ekki að blogga meira :(

vill bara þakka öllum sem ég hitti í gær fyrir góða skemmtun og gott kvöld :)

Kv. Linda þunnildi


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 22:19:29 / Linda

** .. **

já núna er helgin að verða búin...

Gísli Mar var hjá okkur um helgina, það var fjör á honum eins og alltaf.

við tókum því þess vegna bara rólega... kíktum aðeins út í gær, til eddu og ottós... það var ágætt, ekkert frábært samt :)

annars er lítið búið að ske um helgina, vaknaði auðvitað snemma og fór frekar snemma að sofa. Tók svo til í dag, með góðri hjálp frá Sunnevu :) ;)   þreif allt baðherbergið og setti í tvær vélar (geggjað dugleg hehe )

svo er árshátíðin hjá Bónus næsta sunnudag á broadway :D

ég fæ frítt eins og allir starfsmenn en þarf hins vegar að borga 4000 fyrir Halldór :o    Ég og Katrín ætlum auðvitað að vera toppur alls fagnaðar á svæðinu og skemmta okkur eins og drottningar ;)

en jebb jebb... er að deyja úr hungri og ekkert til að borða... wonder why?????       Þannig að ég ætla að fara að glápa á imbann og vonast til þess að Halldór vakni og gefi mér eitthvað að borða ;)

mmmmmm.....

bye for now :D   Linda


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 10:53:16 / Linda

(",)

Ég vaknaði soldið úldin og pirruð í morgun....

en svo spjallaði ég smá við Gísla og fékk mér að borða og svona og varð miklu skárri....

Linda :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 21:07:09 / Linda

Páskinn! :)

já nú eru páskarnir búnir og ég þurfti að fara að vinna í dag :(

fór á Hólmavík um páskana... við fórum saman ég, Halldór og Gísli.

við gerðum aðallega ekki neitt... ég lék við Gísla mest allan daginn og horfði á sjónvarpið :)

fórum reyndar á café rís eitt kvöldið og fengum okkur smá snúning ;)

svo fór ég í heimsókn á sjúkrahúsið með Gísla og Bíu... Nína var að vinna þar :)

við fórum líka nokkra rúnta, einn með Júlíu og Val :)

en þá held ég að það sé bara komið í bili... ætla að fara með henni Katrínu minni að fá henni að borða ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 21:31:53 / Linda

ný sæng mmmm...

já ég keypti mér nýja sæng á busy daginn minn hehe :)

hún er risastór 200x220 cm ;)    það er sko geggjað að liggja undir henni og hún er sko alveg þess virði sem hún kostaði :D

ooog... annað í fréttum er það að ég er byrjuð í "nýrri" vinnu, ég var semsagt flutt úr bónus í smáranum og yfir í bónus í faxafeni (skeifunni) og það er án efa minnsta bónus búð sem ég hef komið í, ef ekki bara minnsta búð sem ég hef komið í!! :)

ég er yfirkassadama þar... veit ekki alveg ennþá hvernig mér líkar þetta, þetta er svo ALLT ÖÐRUVÍSI en í smáranum... og mér finnst ég svosem ekkert vera yfir-neitt þarna... en þetta kemur svo allt í ljós þegar smá tími er liðinn... og ef þetta breytist ekkert og verður bara ömurlegra þá hringi ég bara grátandi í Önnu og fæ að koma aftur í smárann hehe :)

en ég nenni eiginlega ekki að blogga núna...

Bless í bili... ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 13:51:14 / Linda

hey hey!

ég er búin að gera svo mikið í dag að það er bara óeðlilegt :) ég er í fríi í vinnunni því ég var að vinna í gær og fyrradag, og ég vaknaði kl. 8:30 fór með bílinn í skoðun kl. 9, fékk 07 miða án athugasemda takk fyrir!! og eftir það fór ég í kringluna, fór í passamyndatöku, fór í bankann og sótti um nýtt debetkort, með nýrri mynd og nýrri undirskrift... fór svo í útlendingastofnun og sótti um vegabréf, svo fór ég í þjóðskránna og sótti um að láta breyta lögheimilinu mínu, svo fór ég og fékk mér að borða á subway og svo fór ég heim, vakti Halldór og borgaði svo alla reikningana mína.. lagði mig svo í hálftíma eða svo :D og svo er ég núna bara að blogga og á msn og svona... ég er svo að fara á fund í vinnunni kl 18:30.. þarf líka að ná í hana Katrínu í skólann um 5 held ég, svo er ég að pæla í að fara í rúmfatalagerinn og kaupa mér sæng og versla svo aðeins í matinn í bónus... en þangað til næst... hagið ykkur vel ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 23:51:30 / Linda

=)

jæja jæja... ég er ekki dauð og ég er ekki horfin... ég hef bara verið soldið úr sambandi við umheiminn sökum vinnu og netleysis!! en núna kemst ég á netið heima, veit ekki alveg hver borgar fyrir þetta en mér er svona nokkuð sama þar sem ég er ekkert að downloada neinu eða neitt hehe :) en já, ég er bara að vinna í bónus... flutt á njálsgötuna... er kannski að fara í aðra bónus búð, veit samt ekki alveg hvort ég vill það... maður veit aldrei hvernig mórallinn er annars staðar! og svo er búðin sem ég fer kannski í svo pínulítil að ég kemst örugglega ekki fyrir þar inni...! í fyrsta skipti ætla ég EKKI heim um páskana... Gísli, sonur Halldórs, verður hjá okkur um páskana og verður það líklega stuð eins og alltaf þegar hann kemur í heimsókn :) núna sit ég bara heima, er að fá mér einn bjór... er að fara að vinna í fyrramálið kl. 9 þannig að mig langar helst bara að fara að sofa núna, en maður fær líklegast ekki leyfi til þess neitt á næstunni... ;) Katrín og Sunneva eru hérna, og Grettir, Halldór og Örvar... svo eru Arnar og einhverjir vinir hans á leiðinni.. svo var pælingin að kíkja aðeins í keilu, þarf samt að sjá til hvort ég nenni því... er búin að vera með þennan svakalega hausverk alla vikuna eða eitthvað.. og smá vott af hálsbólgu líka... held að ég sé að fá fuglaflensuna :/ nóg af tuði í bili... ætla að reyna að njóta félagsskaparins hérna og klára þennan bjór sem ég er búin að vera með seinasta klukkutímann.. :D Linda Gleraugnaglámur ;) :D :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6